Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 16:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Everton og Chelsea: Í fyrsta sinn síðan í október
Romeo Lavia.
Romeo Lavia.
Mynd: Chelsea
Chelsea getur hoppað upp fyrir Liverpool í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með því að ná í stig gegn Everton í leik sem hefst núna klukkan 17:30.

Búið er að opinbera byrjunarliðin fyrir leikinn og má sjá þau hér fyrir neðan.

Chelsea tapaði 3-0 gegn Paris Saint-Germain í vikunni og frá þeim leik gerir Liam Rosenior þrjár breytingar. Malo Gusto kemur til baka úr meiðslum og Wesley Fofana kemur inn í vörnina.

Þá byrjar miðjumaðurinn Romeo Lavia sinn fyrsta leik síðan í október síðastliðnum.

James Tarkowski er mættur aftur í vörnina hjá Everton og byrjar þar með Michael Keane í hjartanu. Kiernan Dewsbury-Hall mætir sínum gömlu félögum í Chelsea.

Byrjunarlið Everton: Pickford, O’Brien, Tarkowski, Keane, Mykolenko, Gueye, Garner, Dewsbury-Hall, McNeil, Ndiaye, Beto.
(Varamenn: Travers, Patterson, Coleman, Dibling, Branthwaite, Rohl, Barry, Iroegbunam, Armstrong)

Byrjunarlið Chelsea: Sanchez, Gusto, Fofana, Hato, Cururella, Caicedo, Lavia, Palmer, Enzo, Neto, Joao Pedro.
(Varamenn: Sharman-Lowe, Acheampong, Tosin, Sarr, Essugo, Andrey Santos, Estevao, Garnacho, Delap)
Athugasemdir
banner
banner