Fyrrum fótboltamaðurinn oey Barton stendur frammi fyrir fjárhagslegu hruni eftir röð dómsmála sem hafa kostað hann um 1 milljón punda.
Barton hefur verið í gæsluvarðhaldi í tæplega tvær vikur eftir líkamsárás nálægt vinsælum golfklúbbi í Liverpool.
Barton hefur verið í gæsluvarðhaldi í tæplega tvær vikur eftir líkamsárás nálægt vinsælum golfklúbbi í Liverpool.
Barton, 43 ára, er ákærður ásamt Gary O'Grady fyrir líkamsárásina sem beindist að fyrrum fótboltaþjálfaranum Kevin Lynch. O'Grady, sem er fimmtugur, hefur verið sleppt úr varðhaldi.
Barton hefur undanfarið verið dæmdur til að greiða háar fjárhæðir í skaðabætur og málskostnað vegna ummæla á samfélagsmiðlum um sjónvarpsmanninn Jeremy Vine og fyrrum fótboltakonuna Eni Aluko
Barton stendur frammi fyrir alvarlegum fjárhagsvandræðum og staðan hefur aðeins versnað þar sem hann hefur verið viðriðinn svo mörg dómsmál að undanförnu. Hann hefur þá verið í ýmsum fyrirtækjarekstri sem hefur gengið brösulega.
Barton lék meðal annars fyrir Manchester City, Newcastle og Marseille á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta og spilaði einn A-landsleik fyrir England.
Hann gerðist svo aðalþjálfari hjá Fleetwood Town og Bristol Rovers eftir að hafa lagt skóna á hilluna en hefur að undanförnu lagt meiri einbeitingu í hlaðvarpsþætti sína og að úthúða fólk á internetinu.
Athugasemdir


