Það er nóg um að vera í Championship deildinni í dag og var sjö leikjum að ljúka rétt í þessu.
Hull City, Southampton og Wrexham unnu öll sína leiki í umspilsbaráttunni.
Hull og Wrexham lentu undir í sínum viðureignum en snéru stöðunni við til að tryggja sér dýrmæt stig.
Southampton afgreiddi þá Oxford United snemma leiks með mörkum frá Cyle Larin sem mætir Íslandi í komandi landsleikjaglugga og Shea Charles.
West Brom vann þá annan leikinn sinn í röð og er fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið á meðan Norwich hafði betur á útivelli gegn Charlton.
Norwich er á góðri siglingu eftir hörmulega byrjun á tímabilinu, en liðið er níu stigum frá umspilssæti þegar sjö umferðir eru eftir.
Watford og Leicester gerðu markalaust jafntefli og skoraði QPR sex mörk á heimavelli gegn fallbaráttuliði Portsmouth. Paul Smyth, Rayan Kolli og Richard Kone skoruðu sitthvora tvennuna í stórsigri QPR.
Swansea tekur að lokum á móti toppliði Coventry innan skamms.
21.03.2026 14:27
Championship: Eru ekki að nýta tækifærin
Sheffield Utd 1 - 2 Wrexham
1-0 Andre Brooks ('49 )
1-1 Josh Windass ('54 )
1-2 Toby Samuel Smith ('78 )
Bristol City 0 - 1 West Brom
0-1 George Campbell ('26 )
Charlton Athletic 0 - 1 Norwich
0-1 Pelle Mattsson ('5)
Hull City 3 - 1 Sheffield Wed
0-1 Jamal Lowe ('23 )
1-1 Matt Crooks ('24 )
2-1 Dominic Iorfa ('45 , sjálfsmark)
3-1 Kyle Joseph ('58 )
Southampton 2 - 0 Oxford United
1-0 Cyle Larin ('6 )
2-0 Shea Charles ('13 )
QPR 6 - 1 Portsmouth
1-0 Paul Smyth ('7 )
2-0 Rayan Kolli ('24 )
3-0 Paul Smyth ('29 )
3-1 John Swift ('38 )
4-1 Rayan Kolli ('55 )
5-1 Richard Kone ('86 , víti)
6-1 Richard Kone ('88 )
Watford 0 - 0 Leicester City
0-0 Patson Daka ('41 , Misnotað víti)
Athugasemdir



