Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, hefur átt stórkostlegt tímabil og er að hóta því að bæta stoðsendingametið í ensku úrvalsdeildinni.
Hann hefur á þessu tímabili skorað átta mörk í deildinni og lagt upp 16 ofan á það. Hann þarf fimm stoðendingar í viðbót til að bæta metið yfir flestar stoðsendingar á einu tímabili.
Hann hefur á þessu tímabili skorað átta mörk í deildinni og lagt upp 16 ofan á það. Hann þarf fimm stoðendingar í viðbót til að bæta metið yfir flestar stoðsendingar á einu tímabili.
Er hann besti leikmaður ensku deildarinnar um þessar mundir?
„Mér finnst það," sagði Magnús Haukur Harðarson, stuðningsmaður Liverpool, í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn.
„Bruno hefur verið ofboðslega góður á þessu tímabili," sagði Jóhann Fjalar, lýsandi á Sýn Sports. „Ég held að það sé erfitt að segja að það sé einhver annar betri en hann akkúrat núna.".
„Hann er með 16 stoðsendingar og átta mörk. Hann kemur að flestum mörkum í deildinni. Framan af á þessu tímabili var hann í liði sem var í frjálsu falli," sagði Magnús Haukur.
Það er spurning hvort Bruno geri tilkall í að vera leikmaður ársins en hér fyrir neðan er hægt að hlusta á umræðuna.
Athugasemdir


