Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. mars 2026 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvor er líklegri til að fara á HM?
Rio Ngumoah.
Rio Ngumoah.
Mynd: EPA
Í síðasta þætti af Enski boltinn hlaðvarpinu myndaðist áhugaverð umræða um ungstirni í ensku úrvalsdeildinni.

Max Dowman, leikmaður Arsenal, og Rio Ngumoah, leikmaður Liverpool, hafa vakið athygli í deildinni í vetur. Dowman er 16 ára og Ngumoah er 17 ára.

Hvorugur þeirra hefur verið valinn í enska landsliðshópinn áður en þeir eru væntanlega báðir inn í myndinni fyrir HM í sumar.

Hver man ekki eftir því þegar Sven Göran Eriksson tók 17 ára gamlan Theo Walcott með sér á HM 2006? Gætum við séð slíkt gerast aftur núna?

„Ég er ekki viss um það. Ekki nema þeir verði fáránlega öflugir á lokasprettinum. Ég gæti frekar séð Rio heldur en Dowman. Rio er að spila meira og Dowman er einu ári yngri," sagði Jóhann Fjalar, lýsandi á Sýn Sport, í þættinum.

„Einn á einn er deyjandi list. Pedro Porro var bara í hrærivél þangað til Arne Slot tók Rio út af," sagði Magnús Haukur.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Enski boltinn - Þetta er búið og er Bruno bestur?
Athugasemdir
banner
banner