Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 28. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Titilslagur í Dortmund
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Stærsti leikur deildartímabilsins í efstu deild í Þýskalandi fer fram í dag þegar Borussia Dortmund tekur á móti toppliði og Þýskalandsmeisturum FC Bayern.

Lærlingar Vincent Kompany eru með átta stiga forystu þegar ellefu umferðir eru eftir og geta lagt aðra höndina á Þýskalandsmeistaratitilinn með sigri. Dortmund situr í öðru sæti og missteig sig í síðasta leik gegn RB Leipzig, á meðan Bayern er búið að vinna síðustu þrjá leiki í röð.

Í öðrum leikjum dagsins á Bayer Leverkusen heimaleik við Mainz á meðan Werder Bremen og Heidenheim eigast við í botnbaráttunni.

Borussia Mönchengladbach þarf helst sigur gegn Union Berlin og spilar afar spennandi lið Hoffenheim við fallbaráttulið St. Pauli sem er búið að vinna tvo af síðustu þremur.

Leikir dagsins
14:30 Werder Bremen - Heidenheim
14:30 Hoffenheim - St. Pauli
14:30 Leverkusen - Mainz
14:30 Gladbach - Union Berlin
17:30 Dortmund - Bayern
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 27 22 4 1 97 25 +72 70
2 Dortmund 26 17 7 2 55 26 +29 58
3 RB Leipzig 27 15 5 7 53 35 +18 50
4 Stuttgart 26 15 5 6 51 34 +17 50
5 Hoffenheim 27 15 5 7 54 39 +15 50
6 Leverkusen 27 13 7 7 52 36 +16 46
7 Frankfurt 26 10 8 8 49 49 0 38
8 Freiburg 26 9 7 10 37 43 -6 34
9 Augsburg 26 9 4 13 31 45 -14 31
10 Union Berlin 27 8 7 12 31 46 -15 31
11 Hamburger 26 7 9 10 29 37 -8 30
12 Gladbach 27 7 8 12 33 46 -13 29
13 Werder 27 7 7 13 30 47 -17 28
14 Mainz 26 6 9 11 31 41 -10 27
15 Köln 27 6 8 13 38 47 -9 26
16 St. Pauli 26 6 6 14 23 42 -19 24
17 Wolfsburg 27 5 6 16 35 57 -22 21
18 Heidenheim 27 3 6 18 27 61 -34 15
Athugasemdir
banner