Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 28. mars 2020 16:00
Ívan Guðjón Baldursson
Times: FIFA mun lengja samninga sem renna út
Mynd: Getty Images
Þeir eru margir knattspyrnumennirnir sem verða samningslausir um júní-júlí mánaðarmótin.

Þeir munu þó ekki geta yfirgefið félög sín samkvæmt frétt frá Times sem heldur því fram að FIFA muni lengja alla samninga og láta þá gilda þar til 2019-20 tímabilið verður klárað.

Þetta mun einnig gilda um lánssamninga og því mun félagaskiptamarkaðurinn verða teygður langt fram á haust til að gefa félögum aukið svigrúm á erfiðum tímum.

FIFA hefur ekki lögsögu til að bókstaflega lengja samninga en getur beitt ýmsum úrræðum vegna neyðarástandsins sem hefur skapast.

Mikil óvissa ríkir varðandi framtíð heimsknattspyrnunnar þar sem óljóst er hvenær deildakeppnir geta farið aftur af stað.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner