Jafnt í Fjarðarbyggð
Albert Brynjar Ingason skoraði tvennu er Kórdrengir lögðu Ægi að velli í B-deild Lengjubikarsins.
Hilmar Þór Hilmarsson, Aaron Robert Spear og Páll Sindri Einarsson skoruðu fyrir leikhlé. Bæði mörk Alberts Brynjars komu í síðari hálfleik áður en Aron Skúli Brynjarsson komst á blað.
Kórdrengir eru með sex stig eftir tvær umferðir og sextán mörk í plús. Ægismenn eru stigalausir með fjórtán mörk í mínus.
B-deild, riðill 1:
Ægir 0 - 6 Kórdrengir
0-1 Hilmar Þór Hilmarsson ('21)
0-2 Aaron Robert Spear ('27)
0-3 Páll Sindri Einarsson ('37)
0-4 Albert Brynjar Ingason ('54)
0-5 Albert Brynjar Ingason ('90)
0-6 Aron Skúli Brynjarsson ('90)
Fjarðabyggð gerði þá jafntefli við Hött/Huginn í fyrstu umferð bikarsins.
Nikola Kristinn Stojanovic skoraði á 33. mínútu og leiddi Fjarðabyggð þar til undir lokin.
Arnar Eide Garðarsson jafnaði þá fyrir Hött/Huginn og niðurstaðan 1-1 jafntefli.
B-deild, riðill 4:
Fjarðabyggð 1 - 1 Höttur/Huginn
1-0 Nikola Kristinn Stojanovic ('33)
1-1 Arnar Eide Garðarsson ('81)
Athugasemdir