Enska knattspyrnusambandið hefur tilkynnt að stefnt sé á að leika úrslitaleik enska bikarsins á Wembley laugardaginn 1. ágúst næstkomandi.
Í gær var tilkynnt að enska úrvalsdeildin hefst á ný 17. júní eftir langt hlé vegna kórónaveirunnar og henni á að ljúka fyrir ágúst.
Enski bikarinn hefst aftur helgina 27-28. júní en þá fara átta liða úrslitin fram. Undanúrslitin verða 11-12. júlí og úrslitaleikurinn veðrur 1. ágúst.
8-liða úrslit
Leicester City - Chelsea
Newcastle United - Manchester City
Sheffield United - Arsenal
Norwich City - Manchester United
Athugasemdir