Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mán 30. maí 2022 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Reyna að kaupa einn sinn besta mann á tímabilinu
Djed Spence.
Djed Spence.
Mynd: Getty Images
Bakvörðurinn Djed Spence er núna mjög eftirsóttur eftir gífurlega flott tímabil með Nottingham Forest í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands.

Einhvern veginn tókst Middlesbrough ekki að finna pláss fyrir hann í liðinu sínu og því var hann lánaður til Forest.

Þar sló hann í gegn og hjálpaði hann liðinu að vinna sér sæti í ensku úrvalsdeildinni. Á meðan komst Middlesbrough ekki einu sinni í umspilið.

Spence er núna mjög eftirsóttur. Hann hefur verið orðaður við Arsenal, Brentford, Tottenham og þýska stórveldið Bayern München.

Forest hefur ekki gefið upp vonina á að halda honum í sínum herbúðum og samkvæmt Sky Sports er félagið að undirbúa tilboð í þennan öfluga bakvörð.

Það þykir allavega ljóst að hann verður ekki í Middlesbrough á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner