David Alaba
Fótbolti.net telur dagana til jóla með því að fá valinkunna einstaklinga til að velja bestu leikmenn heims í sérstakt heimslið. Á hverjum degi fram að jólum kynnum við einn í liðinu og á sjálfum aðfangadegi verður fyrirliðinn kynntur, besti leikmaður heims.
Kristinn Jónsson vinstri bakvörður í Breiðabliki sér um að velja vinstri bakvörðinn í heimsliðið. Kristinn velur David Alaba hjá þýsku meisturunum í Bayern.
,,Er algjör lykilmaður í hinni firnasterku vörn Bayern Munchen sem hefur einungis fengið 3 mörk á sig í 15 leikjum í deildinni í ár," sagði Kristinn.
,,David hefur allt sem bakvörður þarf að hafa í boltanum í dag. Hann er fljótur, sterkur, með góðan leikskilning, með frábæran vinstri fót og virkilega góður varnarmaður sem getur einnig leyst stöðu miðvarðar og djúpans miðjumanns."
,,Þrátt fyrir að vera einungis 22 ára gamall hefur hann unnið nánsta allt með Bayern semhægt er að vinna og spái ég því að þessi strákur eigi eftir að bæta sig enn frekar á komandi árum."
David Alaba: David Alaba, FC Bayern
22 ára - Fastamaður í gríðarlega sterkri vörn þýsku meistaranna.
Fimm staðreyndir um Alaba:
- Faðir hans er frá Nígeríu og móðir hans frá Filippseyjum
- Faðir Alaba er nokkuð frægur rappari og DJ í Austurríki
- Alaba var 15 ára kominn í leikmannahóp Austria Vín í úrvalsdeildinni í Austurríki
- 17 ára varð hann yngsti leikmaðurinn í sögu FC Bayern sem og í sögu austurríska landsliðsins
- Alaba og liðsfélagi hans Franck Ribery eru góðir vinir
Bakvörður í heimsklassa
Sjá einnig:
Miðvörður: Vincent Kompany
Miðvörður: John Terry
Hægri bakvörður: Philipp Lahm
Markvörður: Manuel Neuer
Þjálfari: Joachim Löw
Athugasemdir