Eiður Smári Guðjohnsen gæti komið inn í þjálfarateymi íslenska landsliðsins eftir EM í Frakklandi.
Lars Lagerback lætur af störfum eftir EM og þá mun Heimir Hallgrímsson taka einn við sem aðalþjálfari.
Heimir var spurður að því á fréttamannafundi í dag hvort það komi til greina að fá Eið Smára inn í þjálfarateymi landsliðsins.

„Já, já. Það er alveg möguleiki," sagði Heimir á fréttamannafundinum.
„Það er eitthvað sem við höfum rætt um en það er ekkert ákveðið. Þetta er á umræðugrundvelli. Það er mikill áhugi á honum og mikil eftirspurn."
Fyrr á fundinum hafði Eiður sagt að það væri möguleiki að hann færi út í þjálfun þegar ferill hans væri á enda.
Athugasemdir