Guðjón Þórðarson heldur áfram að gera frábæra hluti með Crewe en liðið vann Brighton á útivelli í dag í algerum sex stiga leik.
Þetta var sjötti sigurleikur Crewe í níu leikjum en Guðjón er að gera frábæra hluti með liðið og með sama áframhaldi mun liðið ekki falla.
Gylfi Sigurðsson lék sinn fyrsta leik fyrir Crewe í dag en hann kom inná á 54. mínútu og komst vel frá sínu. Hann skoraði fjórða og síðasta mark liðsins.
Brighton & Hove Albion FC 0 - 4 Crewe Alexandra FC
0-1 B. Jones ('24, víti)
0-2 S. Schumacher ('79)
0-3 B. Jones ('84)
0-4 Gylfi Sigurðsson
Athugasemdir