Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
Gunnar Heiðar ósáttur eftir sigur: Er ekkert eðlilega óánægður með þetta
Nenad: Ég ætla ekki að tjá mig
Jóhann Birnir ósáttur með rauða spjaldið - „Fannst hann bara sækja brotið"
Venni: Ég var aldrei í rónni
Elfar Árni: Spennandi að sjá hvort einhver nýr verði á bekknum í næsta leik
Modoumatarr frá Stokkhólmi: Rólegt líf á Húsavík.
Maggi svekktur: Þeir eru með hörkuhóp
Davíð Smári: Svo sem hægt að kenna dómaranum um
Damir: Gekk betur þegar við föttuðum það
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
Hannah: Rúsínan í pylsuendanum
Arna Sif: Gerist eiginlega ekki verra
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
banner
   fös 01. maí 2026 22:12
Haraldur Örn Haraldsson
Jóhann Birnir ósáttur með rauða spjaldið - „Fannst hann bara sækja brotið"
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er bara svekkelsi, ekki gaman að tapa," sagði Jóhann Birnir Guðmundsson þjálfari ÍR eftir 3-1 tap fyrir Þrótti í kvöld.


Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 -  1 ÍR

Í fyrri hálfleik gekk allt á afturfótunum hjá ÍR þar sem þeir fá rautt spjald, skora sjálfsmark og svo eru stór markmanns mistök í öðru marki Þróttara.

„Svona er bara fótboltinn, gekk allt up í síðasta leik og núna fengum við aðeins að kenna á því. Það eru bara mistök sem kosta okkur mark, það er bara leiðinlegt," sagði Jóhann.

Ágúst Unnar Kristinsson fær rautt spjald á 18. mínútu fyrir að brjóta og stöðva upplagt marktækifæri. Jóhann var hins vegar ekki alveg viss um dóminn.

„Þetta var bara klókt hjá honum, mér fannst hann í rauninni bara sækja brotið. Hann gat ekki annað en gefið honum rautt fyrst að hann dæmdi, en mér fannst hann bara vera að reyna að láta brjóta á sér. Mér fannst Gú (Ágúst) bara vera að reyna að hleypa honum fram hjá sér, þá bara stoppar hann og lætur hann fara á sig. Ekkert hægt að segja við því," sagði Jóhann.


Slapp
banner
banner
banner
banner