Það er ýmislegt að frétta í slúðurpakka dagsins þegar styttist í endan á tímabilinu. BBC tók listann saman og birtist hann hér í boði Powerade. Þar er helst að frétta að Barcelona vill kaupa tvo mikilvæga leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni.
Joao Pedro, 24 ára framherji Chelsea og brasilíska landsliðsins, er efstur á óskalista Barcelona sem arftaki fyrir 37 ára gamlan Robert Lewandowski. (Marca)
Aston Villa fylgist náið með Ibrahim Mbaye, 18 ára kantmanni Paris Saint-Germain og senegalska landsliðsins. Villa ætlar að einbeita sér að því að kaupa inn unga leikmenn í sumar. (Daily Mail)
Alessandro Bastoni, 27 ára miðvörður Inter og ítalska landsliðsins, er efstur á óskalista Barcelona fyrir miðvarðarstöðuna en Börsungar munu snúa sér að Cristian Romero, 28 ára fyrirliða Tottenham, ef þeim tekst ekki að kaupa Bastoni. (AS)
Aston Villa er opið fyrir því að selja kantmanninn sinn Tommi O'Reilly sem hefur vakið áhuga frá liðum í Championship deildinni. O'Reilly er 22 ára og eru Oxford, Portsmouth og Huddersfield meðal áhugasamra félaga. Hann hefur verið að gera flotta hluti á láni hjá Crewe Alexandra í League One deildinni á tímabilinu. (Daily Mail)
Coventry City og Leeds United eru að berjast um belgíska framherjann Loïs Openda, sem er 26 ára. Hann er falur fyrir um 40 milljónir evra eftir að Juventus neyðist til að kaupa hann úr röðum RB Leipzig. (Sport Witness)
Umboðsteymi Anthony Gordon hefur verið í viðræðum við FC Bayern undanfarna mánuði. Þessi 25 ára gamli kantmaður verður seldur til Þýskalandsmeistaranna ef félögin komast að samkomulagi um kaupverð. (Florian Plettenberg)
Brighton og Nottingham Forest eru að berjast um 23 ára miðjumann úr Championship deildinni. Sá heitir Hayden Hackney og hefur verið lykilmaður í liði Middlesbrough síðustu ár. Hann varð Evrópumeistari með U21 landsliði Englands í fyrra. (Football Insider)
Aston Villa, Crystal Palace og Nottingham Forest eru í kapphlaupi um að festa kaup á Bailey Rice, 19 ára miðjumanni Rangers. (Teamtalk)
Aston Villa óttast að missa markvörðinn öfluga Emiliano Martínez, 33, úr sínum röðum í sumar og lýst vel á James Trafford, 23 ára varamarkvörð Manchester City, sem arftaka. (Football Insider)
Hansi Flick er að skrifa undir tveggja ára samning við Barcelona. (Mundo Deportivo)



