Draumabyrjun KR heldur áfram og liðið virðist hreinlega óstöðvandi. Það voru flestir á því að þetta væri fyrsta alvöru þraut KR í deildinni Valur á útivelli með þrjá sigra í röð í farteskinu.
Fannst Óskari þetta vera besta frammistaða liðsins?
„Já ég held að það megi segja það, jafnasta frammistaðan kannski. Við vorum virkilega góðir ef undanskildir eru kannski síðustu fimm til sex mínúturnar. Við vorum mjög öflugir varnarlega, gáfum fá færi á okkur, hleyptum þeim varla inn á okkar eigin vallarhelming. Þú hefur margt fyrir þér í því þegar þú segir það"

Lestu um leikinn: Valur 1 - 4 KR
Valsmenn skoruðu ekki fyrr en á 92. mínútu leiks og það leit út fyrir að KR myndi loksins ná að halda hreinu í fyrsta skipti í sumar.
Var ekki svekkjandi að fá á sig mark alveg í lokin?
„Já það var auðvitað leiðinlegt en ég ætla samt ekkert að vera að kvarta rosalega mikið. Við förum hérna á Hlíðarenda þar sem okkur hefur gengið illa undanfarin ár og töluvert búið að tala um það. Við klárum þennan leik 4-1 og þá horfir maður ekki á það að hafa fengið eitt mark á sig"
Eiður Orri Sæbjörnsson framherji KRinga meiddist á æfingu rétt fyrir leik og gat því ekki tekið þátt í þessum leik. Næsti maðurinn inn var Stefán Arni Geirsson og sá kom sterkur inn í liðið og skoraði tvennu.
Hvernig fannst Óskari frammistaða Stefáns?
„Hann kom gríðarlega sterkur inn, við vissum það. Það var okkar tilfinning að hann gæti komið inn og leyst þessa stöðu vel. Auðvitað er hann allt öðruvísi framherji en Eiður Gauti. Hann var virkilega flottur og er auðvitað frábær leikmaður"
Hvað er að frétta af þessum tveimur leikmönnum sem KR fékk til sín frá Gana en hafa ekki sést í hóp til þessa?
„Þeir eru bara í aðlögun, annar þeirra er í KV og spilaði í dag gegn KÁ í sterkum sigri í 3. deildinni. Hinn er að spila með 2. flokki, þetta tekur bara tíma. Við erum ekki stressaðir og erum ekki að pressa á þá"
Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.