Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
Bryndís Rut hreinskilin eftir stórt tap: „Markmiðið er að halda okkur í deildinni“
Keflavík rúllaði yfir Tindastól – „Geggjað að taka svona sigur“
Hetjan Hallgrímur æfði ekkert í vikunni: Ákvað að svara þegar ég skoraði
Haddi: Róar taugarnar hjá mér
Siggi Höskulds lýsir vonbrigðunum: Nei það er ekki hægt
Gunnar Heiðar ósáttur eftir sigur: Er ekkert eðlilega óánægður með þetta
Nenad: Ég ætla ekki að tjá mig
Jóhann Birnir ósáttur með rauða spjaldið - „Fannst hann bara sækja brotið"
Venni: Ég var aldrei í rónni
Elfar Árni: Spennandi að sjá hvort einhver nýr verði á bekknum í næsta leik
Modoumatarr frá Stokkhólmi: Rólegt líf á Húsavík.
Maggi svekktur: Þeir eru með hörkuhóp
Davíð Smári: Svo sem hægt að kenna dómaranum um
Damir: Gekk betur þegar við föttuðum það
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
Hannah: Rúsínan í pylsuendanum
Arna Sif: Gerist eiginlega ekki verra
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
banner
   mið 03. maí 2023 21:01
Stefán Marteinn Ólafsson
Nonni: Við hefðum getað skorað fleiri mörk
Jón Sveinsson þjálfari Fram
Jón Sveinsson þjálfari Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

5.umferð bestu deildar karla hóf göngu sína í dag en í Úlfársárdalnum áttust við Fram sem voru án sigurs í deildinni og ÍBV sem höfðu sigrað síðustu tvo leiki sína.

Það var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik og liðin skildu jöfn í hlé en í síðari hálfleik voru það Fram sem sóttu mörkin sem skildu liðin af.


Lestu um leikinn: Fram 3 -  1 ÍBV

„Sanngjarn sigur í dag fannst mér og við töluvert sterkara lið, sérstaklega í seinni hálfleik og vörðumst vel því sem Vestmannaeyjingarnir buðu uppá þannig góður sigur." Sagði Jón Sveinsson þjálfari Fram eftir leikinn í dag.

„Það var ágætis jafnvægi í fyrri hálfleiknum og Vestmannaeyjingarnir eru erfiðir að eiga við, þeir eru aggresívir að koma boltanum inn á hættusvæði og sækja þangað og voru að fá óþarflega mikið af hornspyrnum kannski og löng innköst og einhverjar aukaspyrnur þarna sem við þurftum að verjast en við gerðum það vel í dag og svo á endanum tókum við svolítið leikinn yfir í seinni hálfleik og á endanum 3-1 sigur og ég held að það hafi bara verið nokkuð sanngjarnt og við hefðum getað skorað fleirri mörk."

Það var ágætis heppnisstimpill yfir þriðja marki Fram en sumir segja jafnvel loksins að heppnin falli Fram meginn.

„Við skópum það bara pínu og fórum upp og pressuðum þá og þeir ætla að spila sig út úr því en við vinnum boltann og við það að vinna boltann hrekkur hann inn á Tóta sem er aleinn í gegn og kláraði það bara vel."

Nánar er rætt við Jón Sveinsson þjálfara Fram í spilaranum hér fyrir ofan.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner