Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 16:29
Ívan Guðjón Baldursson
England: Man Utd hafði betur í stórleiknum og innsiglaði Meistaradeildina
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Man Utd 3 - 2 Liverpool
1-0 Matheus Cunha ('6 )
2-0 Benjamin Sesko ('14 )
2-1 Dominik Szoboszlai ('47 )
2-2 Cody Gakpo ('56 )
3-2 Kobbie Mainoo ('77 )

Manchester United og Liverpool áttust við í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og úr varð gríðarlega skemmtilegur fótboltaleikur.

Rauðu djöflarnir byrjuðu þremur stigum fyrir ofan Liverpool og eru núna sex stigum ofar heldur en gömlu erkifjendurnir. Það kemur þó ekki að sök fyrir Liverpool þar sem fráfarandi Englandsmeistarar eru svo gott sem öruggir með meistaradeildarsætið sitt þrátt fyrir tap í dag.

Man Utd byrjaði vel gegn Liverpool og skoraði Matheus Cunha strax á sjöttu mínútu þegar boltinn barst til hans eftir hornspyrnu.

Átta mínútum síðar vildi Benjamin Sesko fá dæmda vítaspyrnu en fékk ekki, svo hann stóð upp og hélt áfram að taka þátt í sókninni sem skilaði marki. Bruno Fernandes skallaði boltann fyrir markið og náði Giorgi Mamardashvili, markvörður Liverpool, að setja hendi í boltann en það dugði ekki til. Mamardashvili sló boltann í Sesko og þaðan fór hann í netið.

Man Utd var sterkara liðið í fyrri hálfleik en Liverpool mætti af krafti út í seinni hálfleikinn. Dominik Szoboszlai minnkaði muninn strax í upphafi eftir slæma sendingu frá Amad Diallo. Szoboszlai skoraði eftir laglegt einstaklingsframtak þar sem hann gerði sérstaklega vel að klára færið með afar snyrtilegri afgreiðslu eftir að hafa unnið boltann sjálfur og rakið hann upp hálfan völlinn.

Níu mínútum síðar var það Senne Lammens markvörður sem átti slæma sendingu. Hann gaf boltann á Alexis Mac Allister sem var fljótur að hugsa og sendi á Szoboszlai í fyrstu snertingu. Ungverjinn gaf boltann áfram á Cody Gakpo í fyrstu snertingu og skoraði Hollendingurinn úr góðu færi til að jafna metin.

Staðan var orðin 2-2 og fengu bæði lið tækifæri til að ná forystunni áður en Kobbie Mainoo skoraði laglegt mark. Liverpool mistókst að hreinsa fyrirgjöf almennilega úr teignum svo boltinn lak til Mainoo sem kom á fleygiferð og kláraði með snyrtilegu skoti úr D-boganum til að endurheimta forystu heimamanna.

Liverpool tókst ekki að jafna á lokakaflanum svo lokatölur urðu 3-2 fyrir Man Utd sem innsiglaði Meistaradeildarfótbolta á næsta tímabili.
Slapp
banner
banner
banner