Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 03. ágúst 2022 18:27
Arnar Laufdal Arnarsson
Byrjunarlið Fram og Stjörnunnar: Brynjar Gauti ekki með
Í banni í kvöld
Í banni í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna klukkan 19:15 fer fram leikur Fram og Stjörnunnar í 15.umferð Bestu deildar karla en leikurinn verður spilaður á Framvellinum í Úlfarsárdal.

Brynjar Gauti varnarmaður Fram verður ekki með vegna klásúlu í samningi hans en hann gekk nýlega til liðs við Fram frá Stjörnunni. Adolf Daði Birgisson er í banni vegna uppsafnaðra áminninga.


Guðmundur Magnússon, sóknarmaður Fram, er næst markahæsti leikmaður deildarinnar með ellefu mörk. Ísak Snær í Breiðabliki er með tólf mörk en Gummi Magg nær honum ekki í kvöld þar sem Gummi tekur út leikbann vegna uppsafnaðra áminninga. Alex Freyr Elísson er einnig í banni hjá Fram.

Það eru nokkrar breytingar á byrjunarliðunum frá leikjunum í 14. umferð en Jón Sveinsson gerir þrjár breytingar og Gústi Gylfa gerir fjórar breytingar á sínu liði.

Lestu um leikinn: Fram 2 -  2 Stjarnan

Byrjunarlið Fram
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
4. Albert Hafsteinsson
5. Delphin Tshiembe
9. Þórir Guðjónsson
11. Almarr Ormarsson
13. Jesus Yendis
14. Hlynur Atli Magnússon (f)
21. Indriði Áki Þorláksson
23. Már Ægisson
24. Magnús Þórðarson
28. Tiago Fernandes

Byrjunarlið Stjörnunnar
1. Haraldur Björnsson (m)
6. Sindri Þór Ingimarsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
9. Daníel Laxdal
11. Daníel Finns Matthíasson
14. Ísak Andri Sigurgeirsson
15. Þórarinn Ingi Valdimarsson
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
19. Eggert Aron Guðmundsson
22. Emil Atlason
24. Björn Berg Bryde
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner