,,Ég veit ekki hvernig mér líður. Bara víma, náttúruleg víma," sagði hetja Stjörnunnar, Ólafur Karl Finsen sem var orðlaus nokkrum mínútum eftir að hafa tryggt uppeldisfélagi sínu Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti í sögu félagsins.
Ólafur Karl skoraði bæði mörk Stjörnunnar í 2-1 sigri á FH í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitlinn. Hann tryggði þeim sigurinn úr víti á 93. mínútu leiksins.
Ólafur Karl skoraði bæði mörk Stjörnunnar í 2-1 sigri á FH í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitlinn. Hann tryggði þeim sigurinn úr víti á 93. mínútu leiksins.
,,Ég hugsaði "Við erum Íslandsmeistarar" ég vissi að ég væri aldrei að fara klikka. Ég var farinn að vonast eftir því að fá víti í þessum leik, það var mín fantasía í þessum leik," sagði hetjann sem segir bjarta tíma framundan í Garðabænum,
,,Við erum lang bestir. Þó þessi titill sé þvílík snilld, en bíðið bara. Stjarnan er komin til að vera á toppnum. Þessir ungu strákar sem við höfum, ég er ekkert miðað við þá," sagði Ólafur Karl að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.






















