Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis var ósáttur við að tapa 3-0 gegn KR í átta liða úrslitum Lengjubikarsins í kvöld.
Hann var hins vegar mjög ángæður með spilamennsku liðsins og sagði Fylki hafa verið eina fótboltaliðið á vellinum.
Hann var hins vegar mjög ángæður með spilamennsku liðsins og sagði Fylki hafa verið eina fótboltaliðið á vellinum.
Lestu um leikinn: Fylkir 0 - 3 KR
„Þetta voru skítamörk allt saman, það var eitt fótboltalið á vellinum, við áttum fimm, sex færi og þeir áttu ekki markskot."
„Við vorum yfirburðar aðilinn á vellinum, ég var hrikalega ánægður með strákana. Við verðum að læra af þessu, það er ekki nóg að vera betri."
Hann segist hafa skemmt sér mjög vel yfir spilamennsku síns liðs.
„Við spiluðum þá í kássu í fyrri hálfleiknum. Ég skemmti mér mjög við að horfa á."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.























