Keith Andrews þjálfari Brentford svaraði spurningum eftir að hans menn voru slegnir út í 16-liða úrslitum enska bikarsins eftir vítaspyrnukeppni gegn West Ham.
Andrews mætti til leiks með sterkt byrjunarlið gegn West Ham sem gerði sjö breytingar á sínu byrjunarliði til að hvíla leikmenn fyrir fallbaráttu úrvalsdeildarinnar.
Brentford lenti þrátt fyrir það tvisvar sinnum undir í leiknum eftir mörk frá Jarrod Bowen, en Igor Thiago náði að jafna metin með tveimur mörkum. Leikurinn fór því í framlengingu og svo í vítaspyrnukeppni, en þar skoruðu Hamrarnir úr öllum spyrnunum sínum. Dango Ouattara, kantmaður Brentford, var sá eini sem klúðraði af punktinum og má búast við mikilli gagnrýni eftir að hafa reynt spyrnu að hætti Panenka.
„Það er alltaf erfitt að klúðra vítaspyrnu en ég get sagt ykkur að það er auðveldara að sleppa því að taka spyrnu. Ég man eftir atvikum úr fortíðinni þar sem er níðst á leikmönnum fyrir að klúðra vítaspyrnum og er það gjörsamlega fáránleg hegðun," sagði Andrews, en mögulegt er að Ouattara bíði ljót skilaboð frá ókunnugum á samfélagsmiðlum þegar hann skoðar símann sinn í kvöld.
„Dango hefur verið duglegur að æfa þessa vítaspyrnutækni og nýtur fulls stuðnings frá mér og öllum í leikmannahópinum.
„Við vildum komast í 8-liða úrslitin en þetta var ekki okkar kvöld. Núna fer öll einbeitingin á úrvalsdeildina, við eigum níu leiki eftir og getum reynt að afreka eitthvað stórkostlegt."
Brentford er í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar, aðeins fjórum stigum frá sæti í deildarkeppni Evrópudeildarinnar.
Dango Ouattara's penanka penalty miss against West Ham United. He was the only player to miss as Brentford exit the FA Cup
by
u/notaghostofreddit in
soccer
Athugasemdir



