Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 23:43
Ívan Guðjón Baldursson
Bowen: Erum hungraðir í titla
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Jarrod Bowen fyrirliði West Ham var hetja sinna manna í enska bikarnum í kvöld. Hann skoraði bæði mörk liðsins í venjulegum leiktíma en þau dugðu ekki til eftir tvö jöfnunarmörk frá Igor Thiago.

Bowen náði forystunni í tvígang fyrir Hamrana en leikurinn fór í framlengingu og að lokum alla leið í vítaspyrnukeppni, þar sem Bowen skoraði úr fyrstu vítaspyrnunni.

Allar vítaskyttur West Ham skoruðu örugglega á meðan Dango Ouattara klúðraði fyrir gestina með hörmulegri Panenka tilraun.

„Þetta er frábær tilfinning. Við viljum reyna að vinna þessa keppni en hún er mjög erfið, við erum búnir að þurfa framlengingu í hverjum einasta leik til að komast á þetta stig. Þetta er frábær tímapunktur fyrir okkur sem liðsheild eftir ömurlegt gengi síðasta haust. Við erum byrjaðir að vinna leiki og þessi sigur í kvöld er gríðarlega mikilvægur," sagði Bowen.

„Við spiluðum vel gegn sterkum andstæðingum og við þurfum að gera enn betur ef við viljum komast alla leið í úrslitaleikinn. Við erum hungraðir í titla og mig dreymir persónulega um að vinna FA bikarinn. Við vitum að það er ennþá langur vegur framundan en þetta er skref í rétta átt. Við erum að öðlast sífellt meira sjálfstraust og núna þurfum við að hvíla okkur og beina einbeitingunni að gríðarlega mikilvægum leik í úrvalsdeildinni um næstu helgi. Það er ekki hollt fyrir neinn að hamast um í 120 mínútur svo núna þurfum við að einbeita okkur að endurheimt."

West Ham tekur á móti Leeds United í 8-liða úrslitum bikarsins í byrjun apríl, en næsti deildarleikur er á heimavelli gegn titilbaráttuliði Manchester City um næstu helgi.

„Við þurftum á þessum sigri að halda. Við erum að eiga mjög erfitt tímabil, ég hef sjálfur átt erfitt uppdráttar svo þessi mörk eru kærkomin. Ég legg mig alltaf allan fram í hvern einasta leik og fer ekki í felur þó það gangi illa. Ég nýt þess að skora mörk og ég nýt þess að vera fyrirliði félagsins, ég fer mjög ánægður á koddann í kvöld.

„Við spiluðum vel í kvöld og það var sérstaklega ánægjulegt að sjá strákana sem hafa kannski ekki fengið að spila í nokkrar vikur koma inn í byrjunarliðið og standa sig svona vel. Mér líður eins og liðsheildin sé orðin mjög sterk hjá okkur. Það er nóg eftir af tímabilinu og okkur líður vel."

Athugasemdir
banner
banner