Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 21:27
Ívan Guðjón Baldursson
Flick um rifrildin: Ég þekki sannleikann
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Markvörðurinn Joan García var gríðarlega eftirsóttur síðasta sumar en skipti að lokum frá Espanyol til nágrannaliðs Barcelona.

Börsungar greiddu upp riftunarákvæðið í samningi García sem hljóðaði upp á 25 milljónir evra, en fleiri félög voru tilbúinn til að gera slíkt hið sama og var Newcastle United eitt þeirra.

Newcastle og Barcelona eigast við í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld og svaraði García spurningum á fréttamannafundi í dag.

„Það er alltaf mikið af orðrómum en ég get sagt ykkur eitt: Um leið og ég vissi af áhuga frá Barcelona þá var ekkert annað í stöðunni en að fara þangað. Ekki spurning," sagði García.

Hansi Flick þjálfari Barcelona svaraði einnig spurningum og var meðal annars spurður út í opinber rifrildi Xavi Hernández, forvera hans í þjálfarastarfinu, við Joan Laporta, forseta félagsins, í fjölmiðlum síðustu daga.

„Við erum kollegar og eigum í góðu sambandi. Ég hef heimsótt hann og við höfum rætt um liðið, en það er einkamál á milli okkar.

„Ég þekki sannleikann í þessu máli og ætla að halda honum útaf fyrir mig. Ég mun ekki að tjá mig frekar um málið."


   09.03.2026 19:07
Laporta svarar: Xavi er að láta nota sig

Athugasemdir
banner