Frakklands- og Evrópumeistarar Paris Saint-Germain stóðu uppi sem öruggir sigurvegarar gegn heimsmeisturum Chelsea er liðin áttust við í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar fyrr í kvöld.
Leikurinn var jafn og skemmtilegur en heimamenn nýttu færin sín til hins ítrasta og skópu þannig 5-2 sigur.
Pedro Neto var einn af bestu leikmönnum í tapliði Chelsea og lá honum mikið á undir lok leiksins þegar PSG var með forystuna. Hann vildi flýta sér að koma boltanum aftur í leik. Boltastrákurinn gerði Neto erfitt fyrir svo portúgalski kantmaðurinn brást við með að ýta honum frá sér og hrifsa boltann af honum.
„Ég vil biðjast afsökunar á þessu atviki. Ég vil biðja boltastrákinn afsökunar, ég er búinn að tala við hann persónulega," sagði Neto eftir lokaflautið.
„Við vorum að tapa leiknum og í öllu tilfinningaflóðinu vildi ég vera fljótur að koma boltanum aftur í leik svo ég ýtti boltastráknum aðeins.
„Ég er ekki þessi týpa, þetta var gert í hita leiksins og ég vil biðjast afsökunar. Mér líður mjög illa yfir þessu.
„Franskan mín er ekki sérlega góð svo Vitinha (liðsfélagi Neto í portúgalska landsliðinu) kom og hjálpaði mér. Hann sagði við boltastrákinn að ég væri ekki slæmur og að lokum þá hló hann. Ég sagði fyrirgefðu kannski 35 sinnum og gaf honum treyjuna mína."
Pedro Neto pushes the ball boy vs PSG (no card)
by
u/977x in
soccer
Athugasemdir



