Ari Sigurpálsson skoraði dramatískt jöfnunarmark þegar Elfsborg gerði 2-2 jafntefli gegn Vasteras í 2. umferð sænsku deildarinnar í dag.
Ari kom inn á fyrir Júlíus Magnússon þegar fimm mínútur voru til loka venjulegs leiktíma. Hann gerði sér lítið fyrir og jafnaði metin í 2-2 með marki í uppbótatíma.
Ari kom inn á fyrir Júlíus Magnússon þegar fimm mínútur voru til loka venjulegs leiktíma. Hann gerði sér lítið fyrir og jafnaði metin í 2-2 með marki í uppbótatíma.
Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði Gautaborg sem tapaði gegn Hacken 2-0. Elfsborg er í 2. sæti með fjögur stig, jafn mörg stig og topplið Hacken. Gautaborg er hins vegar án stiga en Mjallby, ríkjandi meistarar, eru á botninum eftir tap gegn nýliðum Örgryte í dag.
Hearts er með þriggja stiga forystu á Celtic í titilbaráttunni í Skotlandi eftir 3-1 sigur á Motherwell. Tómas Bent Magnússon, leikmaður Hearts, er fjarverandi vegna meiðsla og þá var Eyþór Björgólfsson ekki með Motherwell í dag.
Júlíus Mar Júlíusson var í byrjunarliði Kristiansund sem tapaði 2-0 gegn Tromsö í norsku deildinni. Hrannar Snær Magnússon kom inn á undir lokin. Kristiansund er í 13. sæti með þrjú stig eftir þrjár umferðir.
Sigurpalsson poängräddare för Elfsborg
— Fotbollskanalen (@fotbollskanal) April 11, 2026
Se alla höjdpunkter, mål och klipp från Allsvenskan på Fotbollskanalen pic.twitter.com/hiFC2b7qgX


