Arsenal tapaði 2-1 gegn Bournemouth í úrvalsdeildinni í dag. Liðið er með níu stiga forystu á Man City í titilbaráttunni.
City á hins vegar tvo leiki til góða og toppliðin tvö mætast um næstu helgi. Munurinn gæti því orðið allt að þrjú stig.
Viktor Gyökeres, framherji Arsenal, skoraði mark liðsins úr vítaspyrnu, hann sagði að völlurinn hafi verið erfiður í dag.

„Við fengum nokkur fín færi undir lokin. Völlurinn var svolítið þurr svo það hjálpaði ekki. Auðvitað þurfum við allir að gera betur og nýta færin," sagði Gyökeres.
Gyökeres er bjartsýnn þrátt fyrir erfitt gengi liðsins að undanförnu en liðið hefur tapað síðustu tveimur leikjum sem voru úrslitaleikur enska deildabikarsins og 8-liða úrslit bikarsins.
„Ég er mjög bjartsýnn. Við þurfum ekki að staldra of lengi við það sem gerðist í daag. Við þurfum að horfa fram á veginn, hugsa jákvætt og hlakka til leikjanna."