Ríkjandi bikarmeistarar Vestra eru komnir áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir 1-0 sigur á Leikni á Kerecis-vellinum á Ísafirði í dag. Heimamenn nýttu sér hrikalega varnarmistök undir lok leiks og bókuðu um leið farseðilinn í næstu umferð.
Fyrri hálfleikurinn var ekki upp á marga fiska og vantaði upp á gæðin á köflum.
Vestri skapaði sér nokkur hálffæri en það voru Leiknismenn sem fóru sáttari inn í hálfleikinn, enda með vindinn í bakið í seinni hálfleiknum.
Ólafur Íshólm Ólafsson kom Leikni nokkrum sinnum til bjargar með góðum vörslum og þá var Marin Darri Steinarsson, markvörður Vestra, kallaður til í tvígang eftir mistök hjá liðsfélögum hans.
Þegar fjórar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma kom sigurmark Vestra. Leikmenn Leiknis voru með boltann í eigin vítateig og ætluðu að spila sín á milli, en Imran Mehanovic komst inn í sendinguna með hálfgerðri tæklingu. Afar klaufalegt hjá Leikni á lokamínútunum.
Emmanuel Duah gat endanlega gert út um leikinn augnabliki síðar er hann og Pétur Bjarnason komust tveir á móti einum. Pétur færði boltann á Duah sem var kominn í góða stöðu en Ólafur sá við slöku skoti hans.
Leiknismenn fengu aukaspyrnu undir lok leiks sem var síðasta tilraun þeirra til að tryggja sér framlengingu. Shkelzen Veseli tók spyrnuna en Marvin var vandanum vaxinn í markinu og sá til þess að koma Vestra áfram í næstu umferð.
Vestri mætir Gróttu í 16-liða úrslitum en þau fara fram dagana 13. og 14. maí.


