Cristiano Ronaldo skoraði 968. markið á ferlinum í 2-0 sigri Al Nassr á Al Okhdood í sádi-arabísku deildinni í kvöld. Al Nassr er nú með fimm stiga forystu á toppnum þegar sex umferðir eru eftir.
Portúgalinn gerði fyrra mark Al Nassr á 15. mínútu leiksins er hann fékk sendingu frá Nawaf Boushal inn á teiginn og skaut föstu skoti í netið.
Ronaldo er nú aðeins 32 mörkum frá því að ná markmiði sínu sem er að skora 1000 mörk á ferlinum.
Joao Felix gerði annað markið snemma í síðari hálfleiknum.
Al Nassr er á toppnum með 73 stig, fimm stigum meira en Al Hilal sem er í öðru sæti.
????????| GOAL: CRISTIANO RONALDO GIVES AL NASSR THE LEAD AND SCORES HIS 968TH CAREER GOAL!!!
— CentreGoals. (@centregoals) April 11, 2026
Al Akhdoud 0-1 Al Nassrpic.twitter.com/x9Q7l4LmeK


