Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   lau 11. apríl 2026 22:06
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Sevilla vann varalið Atlético - Allt púður sett í Meistaradeildina
Nemanja Gudelj fagnar sigurmarkinu gegn Atlético
Nemanja Gudelj fagnar sigurmarkinu gegn Atlético
Mynd: EPA
Sevilla 2 - 1 Atletico Madrid
1-0 Akor Adams ('10 , víti)
1-1 Javier Bonar ('35 )
2-1 Nemanja Gudelj ('45 )

Sevilla vann 2-1 sigur á Atlético Madríd í La Liga í kvöld, en það vakti athygli að Diego Simeone tefldi fram varaliði sínu í leiknum og ætlar að setja alla einbeitingu á Meistaradeildina.

Í vikunni unnu Atlético-menn fyrir leikinn gegn Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Atlético fer með 2-0 forystu inn í seinni leikinn sem er spilaður á heimavelli liðsins og ákvað því Simeone að hvíla alla nema einn í leiknum í kvöld.

Argentínski markvörðurinn Juan Musso var sá eini sem hélt sæti sínu í liðinu en hann hefur staðið á milli stanganna síðan Jan Oblak meiddist.

Akor Adams skoraði fyrir Sevilla úr vítaspyrnu á 10. mínútu en Atlético kom til baka með marki hins tuttugu ára gamla Javier Bonar sem var að byrja sinn fyrsta deildarleik með liðinu. Sá nýtti tilefnið til fulls.

Serbneski miðjumaðurinn Nemanja Gudelj ákvað hins vegar að eyðileggja kvöldið fyrir Bonar með marki undir lok fyrri hálfleiks sem reyndist sigurmarkið.

Atlético eflaust alveg sama um þessi úrslit enda nánast búið að tryggja Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð. Atlético er í 4. sæti með 57 stig, tólf stigum fyrir ofan Real Betis, en Sevilla í 15. sæti með 34 stig.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 36 30 1 5 91 32 +59 91
2 Real Madrid 36 25 5 6 72 33 +39 80
3 Villarreal 36 21 6 9 67 43 +24 69
4 Atletico Madrid 36 20 6 10 60 39 +21 66
5 Betis 36 14 15 7 56 44 +12 57
6 Celta 36 13 11 12 51 47 +4 50
7 Getafe 36 14 6 16 31 37 -6 48
8 Real Sociedad 36 11 12 13 55 56 -1 45
9 Vallecano 36 10 14 12 37 43 -6 44
10 Athletic 36 13 5 18 40 53 -13 44
11 Valencia 36 11 10 15 39 51 -12 43
12 Sevilla 36 12 7 17 46 58 -12 43
13 Osasuna 36 11 9 16 43 47 -4 42
14 Espanyol 36 11 9 16 40 53 -13 42
15 Alaves 36 10 10 16 42 54 -12 40
16 Girona 36 9 13 14 38 53 -15 40
17 Elche 36 9 12 15 47 56 -9 39
18 Mallorca 36 10 9 17 44 55 -11 39
19 Levante 36 10 9 17 44 59 -15 39
20 Oviedo 36 6 11 19 26 56 -30 29
Slapp
banner