Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
   lau 11. apríl 2026 21:06
Brynjar Ingi Erluson
Stefán skoraði og meiddist í mikilvægum sigri - Annað mark Bjarna í Danmörku
Stefán Teitur skoraði fyrir Hannover
Stefán Teitur skoraði fyrir Hannover
Mynd: Hannover 96
Bjarni Aðalsteinsson var á skotskónum með Roskilde
Bjarni Aðalsteinsson var á skotskónum með Roskilde
Mynd: Roskilde
Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson var á skotskónum með Hannover í 2-0 sigri á Darmstadt í þýsku B-deildinni í kvöld.

Stefán Teitur kom til Hannover í vetrarglugganum eftir að hafa spilað við góðan orðstír með Preston á Englandi.

Hann spilaði fáar mínútur í fyrstu leikjunum en vann sér inn fast sæti í liðinu í síðasta mánuði og verið mikilvægur síðan.

Í kvöld gerði hann annað deildarmark sitt með Hannover sem vann gríðarlega mikilvægan sigur á Darmstadt í toppbaráttunni í B-deildinni.

Eina neikvæða var að hann þurfti að vera af velli á 72. mínútu vegna meiðsla en vonandi að það sé ekkert alvarlegt enda þarf Hannover á honum að halda í lokaumferðunum.

Hannover er í 3. sæti með 53 stig, aðeins tveimur stigum frá toppnum þegar fimm umferðir eru eftir.

Dagur Dan Þórhallsson byrjaði hjá Montreal sem tapaði fyrir Philadelphia Union, 2-1, í MLS-deildinni. Montreal er í næst neðsta sæti Austur-deildarinnar með aðeins þrjú stig eftir sjö leiki.

Brynjólfur Andersen Willumsson spilaði rúman stundarfjórðung í markalausu jafntefli Groningen gegn Go Ahead Eagles í Íslendingaslag.

Stefán Ingi Sigurðarson og Alfons Sampsted voru báðir í byrjunarliðinu hjá Eagles. Groningen er í 9. sæti með 42 stig en Eagles í 11. sæti með 36 stig.

Hilmir Rafn Mikaelsson kom inn af bekknum í 5-0 stórsigri Viking á Bodö/Glimt. Viking er í öðru sæti með níu stig eftir fjóra leiki en Bodö/Glimt í 10. sæti með þrjú stig eftir tvo leiki.

Kjartan Már Kjartansson spilaði síðustu mínúturnar í 2-0 sigri Aberdeen á Hibernian í skosku úrvalsdeildinni. Þetta voru fyrstu mínútur hans með Aberdeen síðan í febrúar en liðið er í 8. sæti með 33 stig.

Ólafur Hjaltason kom inn á sem varamaður í fyrri hálfleik í 3-1 sigri Aarhus Fremad á B93 í dönsku B-deildinni. Aarhus er í öðru sæti fallriðilsins með 30 stig.

Bjarni Aðalsteinsson var þá á skotskónum með Roskilde í 1-1 jafntefli liðsins gegn Vendsyssel í meistarariðli dönsku C-deildarinnar. Þetta var annað mark hans síðan hann kom frá KA.

Roskilde er í 4. sæti með 36 stig þegar níu umferðir eru eftir og enn möguleiki á að komast upp, en núna er það átta stigum frá öruggu sæti í B-deildina.
Slapp
banner
banner
banner