Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
banner
   lau 11. apríl 2026 20:12
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Bayern getur orðið meistari um næstu helgi
Michael Olise skoraði í fimm marka sigri
Michael Olise skoraði í fimm marka sigri
Mynd: EPA
Yan Diomande gerði sigurmark Leipzig
Yan Diomande gerði sigurmark Leipzig
Mynd: EPA
Þýskalandsmeistarar Bayern München eru komnir með aðra hönd á titilinn eftir 5-0 stórsigur liðsins á St. Pauli í dag. Borussia Dortmund, helsti keppinautur Bæjara, tapaði óvænt á heimavelli og á lítinn sem engan möguleika á að ná toppliðinu.

Bæjarar leyfðu sér að hvíla Harry Kane sem sneri aftur í vikunni í Meistaradeildarleiknum gegn Real Madrid.

Vincent Kompany gerði alls sjö breytingar á liðinu en það virtist ekki skipt neinu.

Jamal Musiala var ekki lengi að koma gestunum í forystu með skalla eftir fyrirgjöf Konrad Laimer og létu Bæjarar það sér nægja inn í hálfleikinn.

Í þeim síðari skoruðu þeir fjögur til viðbótar. Leon Goretzka skoraði með góðu skoti eftir aukaspyrnu Joshua Kimmich og mínútu síðar skoraði Michael Olise gott mark.

Leikmenn St. Pauli voru ekkert að vanda sig í uppspilinu heldur en þar kom fjórða markið er boltinn tapaðist, honum komð inn fyrir á Nicolas Jackson sem var í engum vandræðum með að skora.

Fimmta markið var ekkert ósvipað markinu sem kom á undan. Varnarmaður St. Pauli tapaði boltanum og var það Raphael Guerreiro sem afgreiddi hann snyrtilega í netið.

Alger uppgjöf hjá St. Pauli en mikilvægt hjá Bayern sem er á toppnum með 76 stig, tólf stigum meira en Borussia Dortmund þegar fimm umferðir eru eftir. Dortmund tapaði á heimavelli fyrir Bayer Leverkusen, 1-0, og getur því Bayern fagnað titlinum í næstu umferð.

Yan Diomande var hetja RB Leipzig í 1-0 sigri liðsins á Borussia Mönchengladbach. Hann hefur verið orðaður við mörg stórlið síðustu mánuði.

Leipzig er í 3. sæti með 56 stig en Gladbach í 13. sæti með 30 stig.

Heidenheim 3 - 1 Union Berlin
1-0 Mathias Honsak ('9 )
2-0 Mathias Honsak ('36 )
2-1 Leopold Querfeld ('75 )
3-1 Budu Zivzivadze ('79 )

Wolfsburg 1 - 2 Eintracht Frankfurt
0-1 Oscar Hojlund ('21 )
0-2 Arnaud Kalimuendo ('32 )
1-2 Dzenan Pejcinovic ('90 )

St. Pauli 0 - 5 Bayern
0-1 Jamal Musiala ('9 )
0-2 Leon Goretzka ('53 )
0-3 Michael Olise ('55 )
0-4 Nicolas Jackson ('65 )
0-5 Raphael Guerreiro ('88 )

Borussia D. 0 - 1 Bayer
0-1 Robert Andrich ('42 )

RB Leipzig 1 - 0 Borussia M.
1-0 Yan Diomande ('81 )
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 33 27 5 1 117 35 +82 86
2 Dortmund 33 21 7 5 68 34 +34 70
3 RB Leipzig 33 20 5 8 65 43 +22 65
4 Stuttgart 33 18 7 8 69 47 +22 61
5 Hoffenheim 33 18 7 8 65 48 +17 61
6 Leverkusen 33 17 7 9 67 46 +21 58
7 Freiburg 33 12 8 13 47 56 -9 44
8 Frankfurt 33 11 10 12 59 63 -4 43
9 Augsburg 33 12 7 14 45 57 -12 43
10 Mainz 33 9 10 14 42 53 -11 37
11 Hamburger 33 9 10 14 39 53 -14 37
12 Union Berlin 33 9 9 15 40 58 -18 36
13 Gladbach 33 8 11 14 38 53 -15 35
14 Köln 33 7 11 15 48 58 -10 32
15 Werder 33 8 8 17 37 58 -21 32
16 Wolfsburg 33 6 8 19 42 68 -26 26
17 Heidenheim 33 6 8 19 41 70 -29 26
18 St. Pauli 33 6 8 19 28 57 -29 26
Slapp
banner
banner