Slúðurpakki dagsins er kominn í hús. Andy Robertson, Enzo Feranandez, Morgan Rogers, Neymar og fleiri koma við sögu.
Tottenham er líklegast til að fá skoska vinstri bakvörðinn Andy Robertson, 32, sem yfirgefur Liverpool þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar, af því gefnu að liðið haldi sæti sínu í úrvalsdeildinni. (Athletic)
Chelsea gæti sett argentíska miðjumanninn Enzo Fernandez á söluliista í sumar ef liðinu mistekst að vinna sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Hann er sterklega orðaður við Real Madrid. (AS)
Man City hefur hafið óformlegar viiðræður við Sporting um kaup á danska miðjumanninum Morten Hjulmand, 26, en Man Utd og Juventus hafa einnig áhuga á honum. (A Bola)
Ederson, 26, miðjumaður Atalanta, hefur hafnað tilboðum frá félögum á borð við Arsenal, Man Utd og Newcastle en Brasilíumaðurinn er spenntur fyrir því að ganga til liðs við Atletico Madrid. (AS)
Arsenal, Chelsea, Liverpool, Man Utd, Newcastle, Barcelona og Real Madrid eru öll orðuð við Kees Smit, 20, miðjumann AZ Alkmaar í sumar. (Caughtoffside)
Man Utd, Arsenal, Chelsea og PSG eru öll að íhuga að gera tilboð í Morgan Rogers, 23, sóknarmann Aston Villa. (Sky Sports)
Arsenal hefur fylgst grant með gangi mála hjá Anthony Gordon og mun skoða stöðuna áður en sumarglugginn opnar. (Teamtalk)
Celtic er tilbúið að selja sænska vængmanninn Benjamin Nygren, 24, í sumar en Tottenham er tilbúið að bjóða 26 milljónir punda í hann. Brighton, Bournemouth og Valencia hafa einnig áhuga. (SportsBoom)
FC Cincinnati skoðar tækifæri á að fá Neymar, 34, í MLS deildina frá Santos. Viðræður eru þegar hafnar. (Athletic)
Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Man Utd, er í lykilstöðu að fá starfið til frambúðar eftir að hafa hjálpað liðinu að safna 23 stigum af 30 mögulegum síðan hann tók við í janúar. (Talksport)




