Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
Hannah: Rúsínan í pylsuendanum
Arna Sif: Gerist eiginlega ekki verra
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
Birna Jóhanns: Við náðum svo að setja þetta mark í lokin
„Hefði verið extra sætt fyrir hana að ná að setja hann“
Matthías: Ég er stoltur að hafa lifað það af
Agla María fagnaði 250 leikja áfanga með sigri - „Stór áfangi fyrir mig“
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
banner
   mið 11. október 2023 16:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steini Halldórs: Mér finnst umræðan svolítið skrítin stundum
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Eftir leikinn erfiða gegn Þjóðverjum.
Eftir leikinn erfiða gegn Þjóðverjum.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Ísland spilar við Danmörku og Þýskaland síðar í þessum mánuði.
Ísland spilar við Danmörku og Þýskaland síðar í þessum mánuði.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
„Þetta leggst þokkalega vel í mig," sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna, í samtali við Fótbolta.net um komandi verkefni í Þjóðadeildinni.

Stelpurnar spila við Danmörku og Þýskaland á Laugardalsvelli síðar í þessum mánuði. Það má svo sannarlega búast við mjög erfiðum leikjum en íslenska liðið fer auðvitað í báða þessa leiki til að vinna þá, eins og alla leiki.

„Við erum bjartsýn og förum inn í þetta verkefni með því hugarfari að gera okkar besta, og stefnum við á að ná í sigra."

Íslenska landsliðið hefur fengið gagnrýni eftir slæmt tap í Þýskalandi í síðasta glugga þar sem liðið tapaði 4-0 og frammistaðan var ekki upp á marga fiska.

„Það er partur af því að vera í þessu starfi og að vera í kringum þetta lið, að fá ákveðna gagnrýni. Sum þessi gagnrýni er skrítin. Ég taldi upp á fundinum hvað við vorum búin að gera og hvaða leiki við vorum búin að vinna á þessu ári. Þetta eru ekki Kýpur eða einhver lið sem eru lægra skrifuð. Þetta eru lið sem eru í A-deild eða í efri hluta B-deild Þjóðadeildarinnar. Við erum búin að vinna hörkulið á þessu ári. Mér finnst umræðan svolítið skrítin stundum, en þetta er bara partur af því að vera í þessu," sagði Steini.

„Fólk mætir í hlaðvörp og slengir einhverju fram, og ber ekki ábyrgð á neinu - rökstyður ekki neitt. Það er partur af þessu. Ég hlusta aldrei á hlaðvörp og les alveg rosalega lítið af fréttum. Ég veit lítið hvað er í gangi nema einhver spyr mig um eitthvað. Ég heyri eitthvað einstaka sinnum."

Ásthildur Helgadóttir, fyrrum landsliðsfyrirliði, gagnrýndi liðið mikið eftir leikinn gegn Þýskalandi og sagði liðið þurfa að fara í naflaskoðun. „Maður sér ekki leikplanið og maður sér enga stefnu. Það er áhyggjuefni að við getum ekki haldið bolta," sagði Ásthildur meðal annars.

„Ég var spurður um þetta. Ég held að ég hafi bara svarað þessu á blaðamannafundinum áðan."

Steini talaði ítarlega um þróunina á liðinu á fréttamannafundinum og sagði þá:

„Við höfum unnið fimm leiki á þessu ári. Meðal annars höfum við unnið gegn Austurríki úti sem var í átta-liða úrslitum á EM. Við höfum unnið Sviss úti sem var á HM. Við höfum unnið Skota sem voru í umspili, eins og við fyrir HM. Við höfum unnið Wales sem var í umspili og tapaði þar fyrir Sviss í framlengdum leik. Svo erum við búin að vinna Filippseyjar. Það er margt sem við getum sagt að sé jákvætt."

„Við fengum fjögur mörk á okkur fram að Þjóðverjaleiknum í átta leikjum. Finnland skoraði tvö mörk á okkur en í hinum sjö leikjunum fengum við á okkur tvö. Á móti þokkalega sterkum þjóðum sem við getum borið okkur saman við. Auðvitað er ekki gaman að tapa 4-0, og það er sama á móti hverjum þú spilar. Ég er samt þokkalega sáttur við margt sem við höfum verið að gera. Þróunin hefur verið þokkaleg. Við höfum átt í ákveðnum vandræðum sóknarlega, ég viðurkenni það, en varnarleikurinn er sterkur. Það er grundvallaratriði og ég hef verið sáttur við þann hluta."

Það hafa orðið miklar breytingar á liðinu á skömmum tíma.

„Leikmenn hafa verið að hætta, leikmenn hafa orðið ófrískir og hafa meiðst illa. Í kringum hvern einasta glugga höfum við verið að missa tvo, þrjá eða fjóra leikmenn. Þetta hefur gerst á ákveðnum tíma. Það er vonandi komið stopp í þetta og núna fáum við bara leikmenn til baka. Þetta hefur verið rosalega mikið. Við erum núna með 13 leikmenn sem eru að spila á Íslandi en yfirleitt vorum við með 16-18 sem voru að spila erlendis. Þetta er rosalega breyting. Þegar það eru breytingar snýst þetta um að leikmenn sem koma inn þurfa að standa sig, taka við keflinu og standa sig. Þetta tekur tíma, það tekur tíma fyrir leikmenn að þróast inn í hlutverk í landsliðinu," sagði Steini og bætti við:

„Það var umræða um Englendinga á HM að þær missa þrjá leikmenn og þær væru því í ákveðnum vandræðum. Ef Englendingar hefðu misst átta eða tíu leikmenn, hvað hefði verið talað um þá?"

Hægt er að sjá viðtalið við Steina í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan. Ísland mætir Danmörku föstudaginn 27. október kl. 18:30 og Þýskalandi þriðjudaginn 31. október. Báðir leikirnir fara fram á Laugardalsvelli.
Slapp
banner
banner
banner