Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   sun 12. apríl 2026 21:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Erfið byrjun hjá lærisveinum Freysa - Siggi Raggi á toppnum
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann.
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann.
Mynd: EPA
Elías Rafn Ólafsson.
Elías Rafn Ólafsson.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Siggi Raggi hér til hægri.
Siggi Raggi hér til hægri.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslendingaliðin Brann og Rosenborg eru ekki að byrja vel í norsku úrvalsdeildinni þetta tímabilið. Brann tapaði 0-1 gegn Sandefjord á heimavelli í dag og er bara með þrjú stig eftir fjóra leiki, eins og Rosenborg þar sem Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála. Rosenborg vann þó 2-1 sigur á Sarpsborg í dag.

Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði Brann gegn Sandefjord en Kristall Máni Ingason kom inn af bekknum þegar um stundarfjórðungur var eftir.

Annars voru Davíð Snær Jóhannsson og Ólafur Guðmundsson báðir í byrjunarliði Álasundar í 2-2 jafntefli gegn KFUM Oslo, Kolbeinn Birgir Finnsson byrjaði í 1-1 jafntefli Vålerenga gegn Fredrikstad og Viðar Ari Jónsson kom af bekknum í 4-1 tapi HamKam gegn Molde. Viðar lagði upp mark HamKam í leiknum.

Mikilvægur sigur Midtjylland
Í Danmörku vann Midtjylland afar miklvægur útisigur gegn Steve Cooper og lærisveinum hans í Bröndby. Elías Rafn Ólafsson stóð á milli stanganna í 1-2 sigri Midtjylland sem er fimm stigum frá toppliði AGF en framundan eru einmitt leikir á milli þessara toppliða.

Daníel Leó Grétarsson spilaði í 0-2 tapi SönderjysKE gegn Viborg í dag. Rúnar Þór Sigurgeirsson var ekki með SönderjyskE vegna meiðsla og í Viborg var Ísak Andri Sigurgeirsson ekki með. Viborg er í fjórða sæti og SönderjyskE er í fimmta sæti.

Þá vann FC Kaupmannahöfn 2-1 útisigur á Randers. Nýr þjálfari FCK, Bo Svensson, kaus hvorki að nota Viktor Bjarka Daðason né Rúnar Alex Rúnarsson í leiknum.

Siggi Raggi á toppnum í Færeyjum
Í Færeyjum er Sigurður Ragnar Eyjólfsson að fara heldur betur vel af stað með NSÍ Runavík. Hans lærisveinar unnu 2-0 sigur gegn 07 Vestur Sorvagur í dag.

Petur Knudsen kom NSÍ yfir í leiknum og Klæmint Olsen, fyrrum leikmaður Breiðabliks, bætti við öðru marki. Alex Freyr Elísson spilaði með NSÍ í leiknum.

Siggi Raggi tók við NSÍ fyrir tímabilið en liðið er með 13 stig eftir fimm leiki, tveimur stigum meira en Klaksvík.

Malmö vann í Íslendingaslag og Siggi Hall mætti Tenerife
Í Svíþjóð vann Malmö 3-1 sigur á GAIS. Arnór Sigurðsson kom inn af bekknum hjá Malmö í seinni hálfleik á meðan Daníel Tristan Guðjohnsen var ónotaður varamaður. Róbert Gísli Þorkelsson kom inn á eftir tæpan klukkutíma hjá GAIS. Malmö er með fjögur stig eftir tvo leiki en GAIS er án stiga.

Í sænsku C-deildinni varði Sindri Kristinn Ólafsson mark Vasalund í 1-3 tapi gegn Karlstad. Sindri Kristinn er nýkominn til félagsins frá Keflavík.

Andri Fannar Baldursson spilaði allan tímann með Kasimpasa í 3-3 jafntefli Goztepe í tyrknesku úrvalsdeildinni og Sigurður Bjartur Hallsson kom inn af bekknum í dramatísku jafntefli Merida gegn Tenerife í spænsku C-deildinni.

Þá var Willum Þór Willumsson ónotaður varamaður í 1-1 jafntefli NEC Nijmegen gegn lærisveinum Robin van Persie í Feyenoord í hollensku úrvalsdeildinni.
Slapp
banner
banner