Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
   sun 12. apríl 2026 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrrum leikmaður Chelsea óþekkjanlegur í dag
Mateja Kezman.
Mateja Kezman.
Mynd: EPA
Mateja Kezman, fyrrum sóknarmaður Chelsea og fleiri félaga, er óþekkjanlegur í útliti í dag miðað við það hvernig hann leit út á árum áður.

Kezman ákvað að helga sig trúarlífi eftir að hafa lagt skóna á hilluna og gerðist munkur. Þessi 46 ára gamli fyrrum framherji hefur lengi verið trúaður, sérstaklega gagnvart serbnesku rétttrúnaðarkirkjunni.

Kezman hefur um árabil sýnt trú sína með áberandi hætti, meðal annars með húðflúrum tengdum kirkjunni og með því að klæðast undirbol með mynd af Jesú Kristi á meðan ferlinum stóð.

Framherjinn átti fjölbreyttan feril sem spannaði níu lönd, en fótboltaáhugamenn muna líklega best eftir honum eina tímabilið sem hann lék á Stamford Bridge með Chelsea. Eftir að hafa skorað 129 mörk í 176 leikjum fyrir PSV Eindhoven og skapað sér orðspor sem einn öflugasti framherji Evrópu, fékk hann félagaskipti til Chelsea fyrir 5 milljónir punda á fyrstu leiktíð José Mourinho.

Hann náði þó aldrei að endurtaka markaskorun sína frá því í Hollandi og skoraði aðeins sjö mörk í 41 leik með Chelsea.

Hér fyrir neðan má sjá mynd af því hvernig hann lítur út í dag.

Slapp
banner
banner