Jack Wilshere vann sinn fyrsta titil sem þjálfari þegar hann stýrði Luton Town til 2-1 sigurs á Stockport County í úrslitaleik Vertu-bikarsins, bikarkeppni neðri deilda á Englandi.
Luton þurfti að koma til baka eftir að hafa lent undir í fjörugum leik fyrir framan 49.517 áhorfendur á Wembley.
Luton þurfti að koma til baka eftir að hafa lent undir í fjörugum leik fyrir framan 49.517 áhorfendur á Wembley.
Adama Sidibeh kom Stockport yfir, en Emiliano Lawrence jafnaði áður en Nahki Wells skoraði sigurmarkið og tryggði Luton titilinn.
Luton var í úrvalsdeildinni 2023-24 tímabilið en hefur fallið niður um tvær deildir á tveimur árum og er nú í tíunda sæti C-deildarinnar.
Wilshere, sem lék meðal annars Arsenal á sínum leikmannaferli, skrifaði undir þriggja ára samning við Luton í október síðastliðnum.



