Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   sun 12. apríl 2026 18:35
Snæbjört Pálsdóttir
Ingibjörg: Maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum
Eimskip
Ingibjörg Sigurðardóttir segir Ísland þurfa að vera hugrakkara með boltann gegn Úkraínu.
Ingibjörg Sigurðardóttir segir Ísland þurfa að vera hugrakkara með boltann gegn Úkraínu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingibjörg vill sjá Laugardalsvöll fyllast í komandi leikjum.
Ingibjörg vill sjá Laugardalsvöll fyllast í komandi leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingibjörg Sigurðardóttir segir íslenska landsliðið þurfa að sýna bæði hugrekki og þolinmæði þegar liðið mætir Úkraínu í komandi heimaleik á þriðjudaginn.

„Mjög spennandi leikir og gott að vera á heimavelli. Mjög ólíkir leikir, Úkraínuleikurinn er leikur þar sem við viljum vera mikið með boltann og sækja sigur.“


Hún segir stemminguna í hópnum góða fyrir verkefnið.

„Stemningin er bara góð, ég held að allar séu ánægðar að vera heima. Við erum mjög spenntar fyrir leiknum á móti Úkraínu núna.“

Að hennar sögn er mikilvægt að nýta heimaleikina eftir erfiðan síðasta glugga.

„Það er alveg mjög mikilvægt. Við vissum svo sem að þetta yrði erfiður riðill, fengum tvö bestu lið í heimi. Við vissum alltaf að þetta væri að fara vera mjög krefjandi. Mjög gott að fá þessa heimaleiki núna.

Ingibjörg segir lykilatriði að halda ró sinni á boltanum.

„Við þurfum að vera hugrakkar á boltann og þolinmóðar. Þær munu liggja lágt á vellinum, þannig að þolinmæði og svo bara að vera aggressívar inn í teignum líka. Bæði teignum okkar og teignum þeirra, að slútta og verja markið. Þetta verður mikill baráttuleikur.“

Hún segir liðið hafa lært mikið af síðasta verkefni.

„Já það er alveg ótrúlega margt. Þetta voru erfiðir leikir en maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum. Það er bara margt sem við getum tekið með okkur úr þessum bæði jákvætt og neikvætt.“

Ingibjörg spilar með Freiburg í þýsku Bundesligunni og segir reynsluna þar hafa hjálpað sér.

„Ég er mjög ánægð að ég fór í þýsku deildina núna. Þetta er miklu hærra level og þetta er miklu líkara þeim bolta sem er spilaður hérna í landsliðinu. Þannig bara að þora svolítið meira og taka af skarið með boltann.“

Að lokum segir hún stuðning úr stúkunni skipta miklu máli.

„Það er alltaf mikilvægt. Mér finnst að við eigum að vera nálægt því að fylla völlinn alltaf þegar við spilum. Við eigum bara að setja standardinn þar.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner