HK er Lengjubikarsmeistari B-deildar árið 2026 í kvennaflokki eftir magnaðan 4-0 sigur á Gróttu í Kórnum í dag. Fylki vann þá C-deildina með því að gjörsigra Aftureldingu, 4-0, í úrslitaleiknum á tekkVellinum í Árbæ.
KR var á toppnum fyrir leikina í dag en HK-ingar vissu að sigur myndi færa þeim titilinn.
HK gerði gott betur en það og bauð til veislu. Ísabel Rós Ragnarsdóttir skoraði tvö mörk á fyrstu tólf mínútunum sem þær rauðhvítu létu sér nægja inn í hálfleikinn.
Byrjun þeirra í þeim síðari var svipuð og í fyrri. Cally Queen Togiai skoraði tvö á níu mínútum.
Stórkostleg frammistaða hjá HK sem eru Lengjubikarsmeistarar.
Í sama riðli gerðu Selfoss og ÍA markalaust jafntefli á JÁVERK-vellinum á Selfossi.
Selfoss hafnaði í neðsta sæti með 1 stig en ÍA í næst neðsta með 5 stig.
Fylkir vann C-deildina
Fylkiskonur unnu sannfærandi 4-0 sigur á Aftureldingu í úrslitum C-deildar.
Eva Stefánsdóttir skoraði fyrsta markið á 35. mínútu og bætti Harpa Karen Antonsdóttir við öðru þremur mínútum síðar.
Alexandra Austmann Emilsdóttir, leikmaður Aftureldingar, sá rauða spjaldið í byrjun síðari hálfleiks og nýttu Fylkiskonur sér liðsmuninn með því að bæta við tveimur í viðbót.
Arna Ósk Arnarsdóttir skoraði á 76. mínútu og gerði Eva síðan annað mark sitt rúmum tíu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.
Frábært undirbúningstímabil hjá Fylki sem vann einnig Lengjubikarinn í karlaflokki eftir frækinn sigur á KR-ingum.
Úrslit og markaskorarar:
Selfoss 0 - 0 ÍA
HK 4 - 0 Grótta
1-0 Ísabel Rós Ragnarsdóttir ('2 )
2-0 Ísabel Rós Ragnarsdóttir ('12 )
3-0 Cally Queen Togiai ('50 )
4-0 Cally Queen Togiai ('59 )
C-deild - úrslitaleikur:
Fylkir 4 - 0 Afturelding
1-0 Eva Stefánsdóttir ('35 )
2-0 Harpa Karen Antonsdóttir ('38 )
3-0 Arna Ósk Arnarsdóttir ('76 )
4-0 Eva Stefánsdóttir ('79 )
Rautt spjald: Alexandra Austmann Emilsdóttir ('54, Afturelding )


