Þrír afar efnilegir FH-ingar hafa skrifað undir samning hjá félaginu.
Róbert Hugi Sævarsson, Aron Daði Svavarsson og Benjamín Bæring eru leikmennirnir sem skrifuðu undir hjá FH.
Róbert er 16 ára miðjumaður sem er talinn vera mikið efni en kom við sögu í 4-2 sigrinum á Þór í Mjólkurbikarnum. Hann á þá átta leiki að baki með U16 og U17 ára landsliðunum.
Aron Daði er 17 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem hefur verið að glíma við meiðsli í vetur, en er gríðarlega efnilegur og skorað fjögur mörk í níu landsleikjum með U16, U17 og U18. Aron og Róbert skrifuðu undir samning út 2028.
Benjamín er 17 ára gamall framherji sem hefur tekið stór skref með meistaraflokki FH-inga og nýtt tækifæri sín vel. Hann var í æfingahópi U19 ára landsliðsins í vetur. Hann skrifar undir samning út næsta ár.
Þrír efnilegir FH-ingar hafa skrifað undir sína fyrstu samninga við Fimleikafélagið ????
— Fimleikafélag Hafnarfjarðar (@fhingar) April 10, 2026
Róbert Hugi gerir samning út 2028.
"Róbert Hugi er 16 ára miðjumaður sem hefur fengið flott hlutverk á undirbúningstímabilinu. Hluti af 2010 landsliðinu og hefur tekið mjög stór skref í vetur.… pic.twitter.com/NOsOFTAqRq


