Danmörk U19 2 - 3 Ísland U19
0-1 Alberte Mott ('19, sjálfsmark)
1-1 Flora Höjer ('45+5, víti)
1-2 Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir ('48)
1-3 Hannah Jörgensen ('57, sjálfsmark)
2-3 Louise Strauss ('77)
Rautt spjald: Louise Strauss, Danmörk ('91)
0-1 Alberte Mott ('19, sjálfsmark)
1-1 Flora Höjer ('45+5, víti)
1-2 Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir ('48)
1-3 Hannah Jörgensen ('57, sjálfsmark)
2-3 Louise Strauss ('77)
Rautt spjald: Louise Strauss, Danmörk ('91)
Sterkt U19 landslið kvenna vann frábæran sigur gegn Danmörku í undankeppni fyrir Evrópumótið. Tvö sjálfsmörk Dana hjálpuðu til.
Alberte Mott byrjaði á því að skora sjálfsmark fyrir Dani en Flora Höjer jafnaði úr vítaspyrnu seint í uppbótartíma fyrri hálfleiks.
Staðan var því 1-1 í leikhlé en Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir náði forystunni fyrir Stelpurnar okkar í upphafi síðari hálfleiks. Ragnheiður er gríðarlega öflug og leikur með PEC Zwolle í efstu deild í Hollandi.
Hanna Jörgensen gerði sjálfsmark níu mínútum eftir mark Ragnheiðar og tókst Dönum ekki að minnka muninn fyrr en á 77. mínútu. Þar var Louise Strauss á ferðinni.
Strauss kom inn af bekknum á 61. mínútu, minnkaði svo muninn áður en hún lét loks reka sig af velli í uppbótartímanum. Lokatölur urðu því 2-3 fyrir Íslandi.
Ísland er með fjögur stig í undankeppninni eftir jafntefli við Finnland í fyrsta leik. Lokaleikur undanriðilsins er gegn Serbíu, sem tapaði 1-0 fyrir Dönum í fyrstu umferð.


