Marcos Senesi, varnarmaður Bournemouth, er opinn fyrir því að færa sig um set í ensku úrvalsdeildinni.
Hann hefur verið orðaður við Chelsea, Manchester United og fallbaráttulið Tottenham.
Þessi 28 ára Argentínumaður verður samningslaus eftir tímabilið og hefur því getað rætt við félög annars staðar í Evrópu síðan 1. janúar. Juventus er meðal félaga sem hafa áhuga á honum.

BBC segir allt benda til þess að Senesi fari á frjálsri sölu þrátt fyrir að Bournemouth hafi í þrígang boðið honum nýjan samning í þeirri von að halda honum.
Senesi er í stóru hlutverki hjá Bournemouth og byrjaði í 2-1 sigrinum gegn Arsenal á laugardaginn.