Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 11:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hermann fór í aðgerð á hné - Talsvert í að hann snúi aftur
Hermann og þjálfarinn, Aleksandar Linta.
Hermann og þjálfarinn, Aleksandar Linta.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þeir Vicente Valor (1998) og Hermann Þór Ragnarsson (2003) voru fjarri góðu gamni þegar ÍBV tók á móti FH á sunnudag í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.

Báðir voru þeir í lykilhlutverki í liðinu á síðasta timabili. Möguleiki er á því að spænski miðjumaðurinn Valor verði klár í slaginn gegn Val á föstudag en lengra er í Hermann.

Hornfirðingurinn Hermann Þór fór í aðgerð á hné í byrjun mánaðar og er þessa stundina að glíma við bólgur eftir aðgerðina.

Endurkomutími er óljós en ekki er búist við því að hann verði farinn af stað fyrr en í fyrsta lagi eftir rúman mánuð.

Hermann skoraði sjö mörk í 23 leikjum í Bestu deildinni í fyrra og Valor skoraði þrjú mörk í 26 leikjum. Valor hóf síðasta tímabil hjá KR en var seldur aftur til Vestmannaeyja fyrir gluggalok síðasta vor.


Slapp
banner
banner