Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
banner
   mán 04. maí 2026 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Útskýrir liðsvalið - „Get ímyndað mér að hann hafi verið fúll á bekknum"
Daníel kom vel inn í lið Víkings í gær.
Daníel kom vel inn í lið Víkings í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Geir vill nýta breiddina.
Sölvi Geir vill nýta breiddina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það hefur vakið athygli að Daníel Hafsteinsson hefur byrjað á varamannabekknum í tveimur af síðustu þremur leikjum Víking. Hann var valinn maður leikins hér á Fótbolta.net eftir leikinn gegn Keflavík í gær. Daníel kom inn á eftir tæplega klukkutíma leik og bæði skoraði og lagði upp í 1-3 útisigri Víkings.

Daníel ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn gegn ÍA og sagðist þar spila alla leiki, sem eru svo sem ummæli sem koma engum á óvart frá fótboltamanni.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  3 Víkingur R.

Daníel var á síðasta tímabili í liði ársins hér á Fótbolti.net og átti þar á undan mjög gott tímabil með KA. Hann hefur óumdeilalega verið einn besti miðjumaður deildarinnar síðustu misseri. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var spurður út í Daníel í dag.

„Það er eðlilegt að menn skuli velta því fyrir sér. Við erum með stóran hóp og ég met það þannig að þegar törnin seinna í sumar byrjar að þá verði fleiri leikmenn í liðinu komnir með mínútur á vellinum. Það er gott að menn séu búnir að fá mínútur ef t.d. Danni myndi detta út. Ég er að dreifa mínútunum núna og þegar líður á verður Daníel ferskari. Við sáum þann glugga í þessum leik að það hentaði vel að Daníel myndi byrja á bekknum og aðrir fengju mínútur. Það er verið að virkja hópinn. Það er engin varaliðsdeild og það er ekki hægt að halda mönnum sem eru að spila minna í leikformi með öðrum leikjum. Það væri mjög erfitt fyrir menn að koma allt í einu inn þegar þess þarf ef þeir hafa ekki spilað í kannski tvo og hálfan mánuð."

„Það er ekkert út á frammistöðu Danna að setja, ég veit manna best hvað hann getur í fótbolta og hann er með betri, ef ekki besti miðjumaðurinn í deildinni. Hann sýnir gott hugarfar, er liðsmaður. Ég get ímyndað mér að hann hafi verið fúll á bekknum, ég vil að menn séu fúlir á bekknum og vilji byrja alla leiki. Hann sýndi gott fordæmi hvernig á að bregðast við þessu, kemur inn og breytir gangi leiksins. Hann á stóran þátt í því að við fórum í burtu með þrjú stig,"
segir Sölvi Geir.
Innkastið - Hemmi svarar og Stjörnuhrap
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 8 7 1 0 26 - 4 +22 22
2.    KR 8 6 1 1 30 - 19 +11 19
3.    Fram 8 5 2 1 21 - 13 +8 17
4.    Breiðablik 8 4 3 1 19 - 11 +8 15
5.    Valur 8 5 0 3 17 - 14 +3 15
6.    Keflavík 8 3 2 3 11 - 12 -1 11
7.    KA 8 3 1 4 9 - 10 -1 10
8.    ÍA 8 2 3 3 11 - 16 -5 9
9.    Stjarnan 8 2 1 5 14 - 18 -4 7
10.    Þór 8 2 0 6 6 - 20 -14 6
11.    FH 8 0 2 6 12 - 25 -13 2
12.    ÍBV 8 0 2 6 8 - 22 -14 2
Slapp
banner
banner