Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 09:30
Snæbjört Pálsdóttir
Sandra María staðfestir: Það var áhugi frá Englandi
Eimskip
Sandra María var orðuð við ensk félög en ákvað að framlengja samning sinn við Köln.
Sandra María var orðuð við ensk félög en ákvað að framlengja samning sinn við Köln.
Mynd: Köln
Sandra María fór frá Þór/KA til Köln á miðju tímabili og hefur slegið í gegn í Þýskalandi.
Sandra María fór frá Þór/KA til Köln á miðju tímabili og hefur slegið í gegn í Þýskalandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sandra María Jessen hefur fest sig rækilega í sessi hjá þýska félaginu 1. FC Köln eftir að hún tók stóra ákvörðun um að yfirgefa Þór/KA á miðju tímabili síðasta sumar og halda aftur út í atvinnumennsku.

Hún hefur síðan þá slegið í gegn með liðinu og verið lykilmaður, meðal annars skorað reglulega og verið í byrjunarliðinu nánast frá fyrsta degi

„Já ég hafði alveg nokkra valmöguleika eftir EM. Það var einhver áhugi frá nokkrum löndum en einhvern veginn heillaði þýska deildin mig og bara Þýskaland yfir höfuð.“


Í vetur var hún orðuð við félög í ensku deildinni, en ákvað þess í stað að skrifa undir nýjan samning við Köln.

„Það var einhver áhugi frá Englandi já, ég get sagt það. Fer kannski ekki að nefna nein lið. 

Var Sandra María meðal annars orðuð við félög á borð við Liverpool og West Ham áður en hún ákvað að vera áfram hjá Köln. 

„Ég held að Köln hafi vitað af þeim áhuga og ákveðið þess vegna að gera pínu skemmtilegt úr þessum sögusögnum sem voru í gangi á samfélagsmiðlum. Ákveða að taka þetta skemmtilega tvist með England og gerðu þessa flottu auglýsingu.“

Þrátt fyrir þann áhuga segist hún aldrei hafa verið í vafa um ákvörðun sína.

„Ég bara elska að vera í Þýskalandi. Ég náttúrlega er hálfur Þjóðverji og hef búið þarna áður. Unnusti minn er Þjóðverji þannig okkur líður rosalega vel þarna sem fjölskylda. Klúbburinn Köln er bara æðislegur, þetta er bara ein stór fjölskylda og frá degi eitt hefur manni liðið vel.“

„Ég held að þetta hafi bara verið hárrétt skref fyrir mig á þessum tímapunkti, ég allavega stend fast með því í dag.“


Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Slapp
banner