Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   sun 12. apríl 2026 16:54
Snæbjört Pálsdóttir
Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Eimskip
Sandra María Jessen segir íslenska landsliðið ákveðið í að ná í sín fyrstu stig í glugganum
Sandra María Jessen segir íslenska landsliðið ákveðið í að ná í sín fyrstu stig í glugganum
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sandra María er sallaróleg fyrir komandi leiki
Sandra María er sallaróleg fyrir komandi leiki
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Landsliðiskonan Sandra María Jessen segir íslenska landsliðið ákveðið í að ná í sín fyrstu stig þegar liðið mætir Úkraínu og Englandi í komandi heimaleikjum.

„Bara rosalega vel. Þetta er mjög spennandi verkefni báðir leikirnir. Náttúrulega fyrstu heimaleikirnir okkar áttum tvo útileiki þannig að gaman að fá að spila hérna heima fyrir okkar fólk. Við erum bjartsýnar að ná í okkar fyrstu stig í þessum leikjum.“


Hún segir liðið hafa verið fljótt að koms sér í landsliðsgírinn.

„Það er alltaf jafn gaman að hitta hópinn og koma saman. Það er einhvern veginn eins og maður hafi bara verið að æfa með þeim alltaf. Við náum strax að kúpla okkur í landsliðsgírinn og setja til hliðar það sem maður er að gera hjá félagsliðunum. Stemmingin er alltaf góð og maður veit að liðsandinn er bara góður.“

Að hennar sögn þarf liðið að treysta á sitt leikskipulag.

„Það þarf náttúrulega bara að hafa trú á verkefninu sem við erum að fara að leysa. Þetta er rosalega spennandi leikur, Úkraína er með skemmtilegt lið, þær þora að spila fótbolta og gera það af fullum krafti. Við þurfum kannski bara að setja axlirnar niður, vera rólegar með boltann og treysta því leikskipulagi sem þjálfararnir eru búnir að setja upp.“

Sandra María segir liðið hafa lært mikið af síðasta verkefni.

„Ég held að það sé varla hægt að fá erfiðari leiki en við fengum í síðasta glugga og þetta var alveg rosalega skemmtilegt að geta borið sig saman við þær hvar við stöndum.“

Hún segir enga aukna pressu á sig sem sóknarmann.

„Nei í rauninni ekki, ég er alltaf sallaróleg. Ég veit að mörkin koma til okkar, sama hvort það sé úr opnum leik eða föstum leikatriðum. Við ætlum okkur að skora og það þarf bara að setja þá kröfur á okkur að við fáum stig úr þessum leik.“

Að lokum leggur hún áherslu á mikilvægi þess að fá stuðning úr stúkunni

„Það bara skiptir öllu máli, ég held að það sé ekki hægt að undirstrika hversu mikilvægt það er að bara finna fyrir þjóðinni á bakinu á okkur. Það er 12. maðurinn á vellinum og það er bara virkilega þannig.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner