Besta deildin er farin af stað og hún heldur áfram á föstudag þegar öll 2. umferðin verður spiluð. Við hitum upp með því að skoða tíu spennandi að fylgjast með í umferðinni.
föstudagur 17. apríl
17:30 KR-Þór (Meistaravellir)
17:30 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
18:00 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
18:00 Fram-Keflavík (Lambhagavöllurinn)
18:00 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
20:00 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)
Halldór Snær Georgsson hafði misst sæti sitt sem aðalmarkvörður KR en Arnar Freyr Ólafsson meiddist gegn Keflavík svo Dóri fær tækifæri til að sýna sig og sanna að nýju.
Atli Sigurjónsson og félagar í Þór unnu glæsilegan sigur gegn Val í fyrstu umferð. Atli mætir á kunnuglegar slóðir í 2. umferð gegn KR á Meistaravöllum og ljóst er að hann mun fá góðar móttökur enda vinsæll í Vesturbænum.
Meðal þess sem Danijel Djuric hefur skoðað fyrst á dagatalinu þegar hann gekk í raðir KA er hvenær hann myndi spila við Víking. Það verður á föstudaginn!
Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkings hefur mikla breidd og samkeppnin er gríðarleg. Margir leikmenn náðu ekki að sýna sínar allra bestu hliðar gegn Breiðabliki og fróðlegt að sjá hvort það verði breytingar, og hverjir verða hreinlega í hóp!
Valsmenn eru búnir að kveðja bikarinn og töpuðu gegn nýliðum Þórs í fyrstu umferð. Mun uppeldisfélag Hermanns Hreiðarssonar, ÍBV, líka gera honum grikk?
Brasilíski töframaðurinn Fred var ekki með Fram í fyrstu umferð en ætti að geta spilað gegn Keflavík. Sama á við um Ægi Jarl.
Stefan Ljubicic var frábær fyrir Keflavík gegn KR, skoraði tvö og var heldur betur erfiður viðureignar fyrir varnarmenn KR. Það verður verkefni fyrir Framara að halda honum í skefjum.
Það hefur mikið verið fjallað um að Breiðablik hafi ekki lagt kapp á að fá Gísla Eyjólfsson aftur. Gísli mætir með Skagamönnum í Kópavoginn á föstudaginn.
Adolf Daði Birgisson fékk ekki mörg tækifæri hjá Stjörnunni í fyrra, er kominn í FH og er væntanlega ákveðinn í að sýna Garðbæingum að þetta hafi verið mistök.



