Ítalski þjálfarinn Andrea Maldera er að taka við úkraínska karlalandsliðinu sem verður hans fyrsta starf sem aðalþjálfari, en þetta segir Fabrizio Romano.
Maldera vann á yngri árum sínum hjá AC Milan sem tæknilegur stjórnandi í akademíu Milan og síðar sömu stöðu hjá úkraínska landsliðinu undir Andryi Schevchenko, sem hann þekkti frá tíma sínum hjá Mílanóliðinu.
Síðustu ár hefur hann verið aðstoðarmaður Roberto De Zerbi, bæði hjá Brighton og síðast Marseille, en hann kom ekki með honum inn í þjálfarateymið hjá Tottenham.
Hann hefur verið í viðræðum við úkraínska fótboltasambandið um að taka við landsliðinu og hefur hann nú náð samkomulagi við sambandið.
Maldera tekur við af Serhiy Rebrov sem sagði starfi sínu lausu eftir að hafa mistekist að koma Úkraínu á HM.
Fyrsta verkefni Maldera verður að koma Úkraínu á EM sem fer fram eftir tvö ár.



