Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
banner
   mán 16. febrúar 2026 15:00
Kári Snorrason
ÍBV lagði Álaborg
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV 2-1 Álaborg
1-0 Sesar Örn Harðarsson (33')
2-0 Arnar Breki Gunnarsson (35')
2-1 Kelvin John (46')

ÍBV vann 2-1 sigur á danska B-deildarliðinu Álaborg í æfingaleik á Spáni. Sesar Örn Harðarsson og Arnar Breki Gunnarsson skoruðu mörk Eyjamanna með tveggja mínútna millibili í fyrri hálfleik. Viggó Valgeirsson lagði upp bæði mörkin.

Tansaníumaðurinn Kelvin John minnkaði muninn fyrir þá dönsku þegar ein mínúta var liðin af síðari hálfleik. Nóel Atli Arnórsson byrjaði á bekknum hjá þeim dönsku. Álaborg er í 6. sæti dönsku B-deildarinnar sem hefst aftur 20. febrúar eftir vetrarhlé.

Aleksandar Linta tók við stjórnartaumum ÍBV í upphafi árs eftir að Þorlákur Árnason hætti óvænt sem þjálfari liðsins í desember.

Eyjamenn byrjuðu leikinn með sænskan framherja að nafni Lucas og er á mála hjá sænsku meisturunum í Mjällby.

Byrjunarlið ÍBV:
Marcel Zapytowski (m)
Arnór Ingi Kristinsson
Sigurður Arnar Magnússon (f)
Mattias Edeland
Felix Örn Friðriksson
Milan Tomic
Vicente Valor
Viggó Valgeirsson
Arnar Breki Gunnarsson
Sesar Örn Harðarsson
Lucas (framherji á reynslu frá Mjallby)


Athugasemdir
banner
banner