Trent Alexander-Arnold og félagar hans í Real Madrid komust áfram í Meistaradeildinni í gær er þeir lögðu Manchester City að velli í tveggja leikja einvígi.
Eftir leikinn náðist áhugavert myndband af Alexander-Arnold þar sem hann virtist gera grín að Jeremy Doku, framherja Man City.
Eftir leikinn náðist áhugavert myndband af Alexander-Arnold þar sem hann virtist gera grín að Jeremy Doku, framherja Man City.
Alexander-Arnold var settur á móti Doku í leiknum og spilaði bara býsna vel.
Það er óljóst nákvæmlega hvað Alexander-Arnold segir í myndbandinu eftir leikinn, þó er það ljóst af líkamstjáningu hans hverjum hann var að herma eftir. Doku er jú með sérkennilegan stíl þegar hann sækir.
Alexander-Arnold hefur átt erfitt með Doku í gegnum tíðina en gekk vel þarna í gær.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið.
trent after the game was imitating doku’s dribbling style and did a hand gesture to say “where’s he going with that” ????????????pic.twitter.com/V3Q1iFvxRa
— smith(fan)???? (@RMAsmithayo7) March 18, 2026
Athugasemdir


